top of page

Gangsta Jóli
Hinn gleymdi 14. jólasveinn
Gangsta Jóli segist vera 14. jólasveininn og að á meðan hinir sveinkarnir snéru blaðinu við, hafi hann kosið að verða hrekkjóttur innbrotsþjófur sem rænir einhvern einn óheppinn á hverjum aðfangadegi. Samkvæmt honum býr hann yfir ísgöldrum og er yfir 200 ára gamall, sem sýnir bara að forneskjan er römm. Almenningur er allavegana sammála um að hann sé leiðtogi Grýlugengisins og á meðal valdamestu krimma Íslands.

bottom of page



